Rafstöðin í Bíldudal
Um miðjan mars hófust framkvæmdir við Rafstöðina í Bíldudal. framkvæmdir þær sem nú var ráðist í snerust um að skipta um járn á þaki hússins. Í ljós kom að viðurinn í þakinu var óskemmdur og að sjá sem nýr, pappinn þykkur og hefur því arðveitt timbrið vel. Greinilegt er að hluti timbursins í þakinu hafi komið úr skipsviðum, borðin voru breiðari og úr öðru efni en flestar spýturnar sem voru úr furu.
Ætlunin er síðan að halda áfram við endurbyggingu þessa annars merka húss sem hér áður var framleitt rafmagn í. Það er markmið þeirra er mestan áhuga hafa á endurbyggingunni að þar verði aftur framleitt rafmagn og aldrei að vita nema það verði. Víst er að á árarnar eina margir eftir að leggjast, hálfnað verk þá hafið er.


