ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Stórtónleikar Kristjáns Jóhannssonar á Patreksfirði 24. apríl nk.

Kristján Jóhannsson tenórsöngvari er fæddur á Akureyri. Hann er einna þekktastur fyrir hlutverk sín í óperum Verdis. Hann hefur sungið í öllum þekktustu óperuhúsum, bæði á meginlandi Evrópu og í Bandaríkjunum, og má þar t.d. nefna á La Scala og Metropolitan óperuna.

Á efnisskrá tónleikanna á Patreksfirði laugardaginn 24. apríl nk. verður fjöldinn allur af dásamlegum söngnúmerum, einsöngsaríur og dúettar m.a. úr Carmen svo fátt eitt sé nefnt. Söngstjóri Karlakórsins Vestra, Mariola Kowalczyk mun m.a. syngja dúett með Kristjáni. Þá má geta þess að Karlakórinn Vestri og Kvennakórinn Bjarkirnar syngja einnig með Kristjáni.

Það er of langt mál að telja upp afrek Kristjáns í óperu- og tónlistarhúsum um víða veröld, sigrar hans og viðtökur gagnrýnenda hafa yfirleitt verið á eina lund, hvort heldur sem er í Metropolitan óperunni, á Scala í Covent Garden eða í Carnegie Hall. En nú er Kristján Jóhannsson kominn aftur heim og mun dvelja hér næstu tvö árin. Á þeim tíma munu margir njóta starfskrafta hans, en Kristján kennir um þessar mundir í söngskóla Sigurðar Demetz og hefur haldið masterclassa í Söngskólanum í Reykjavík fyrir næstu kynslóð söngvara. Kristján á þá ósk heitasta að koma fleiri Íslendingum á framfæri og sjá þá ná árangri á alþjóðlegum vettvangi óperuheimsins.

Vestfirðingar, nú er tækifæri til að hlýða og sjá stórtenórinn Kristján Jóhannsson á sviði á Patreksfirði.

Tónleikarnir eru á vegum Karlakórsins Vestra


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir