ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Nýtt met upp Búðargilshrygg.

 

Í dag var slegið nýtt með í göngu upp og niður Búðargilshrygginn á Bíldudal. Lagt er af stað frá neðri útsýnispallinum og upp hrygginn upp að klettunum á efri útsýnispallinum og svo niður aftur til baka.

Það er María Bjarnadóttir í Grænuhlíð sem sló sitt eigið met í dag er hún fór leiðina á 5,35 mín, 4,10 mín. upp. Fyrra metið átti hún sjálf 5,54 mín. Nú væri gaman ef einhverjir hafa farið þetta á styttri tíma eða munu fara á styttri tíma, láti vita þannig að skrá megi tímann.

Þessi gönguleið er orðin vinsæl hér á Bíldudal og eru margir sem labba þarna upp sér til heilsubóta. Ekki skemmir útsýnið þarna uppi en það er frábært, sjón er sögu ríkari.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir