Nýr starfsmaður Skrímslaseturs.
Skrímslasetrið hefur ráðið Ásu Dóru Finnbogadóttur til starfa og mun hún hafa umsjón með rekstri Skrímslasetursins í sumar. Gert er ráð fyrir að formleg opnun verði 1. júní en nú er verið að gera klárt fyrir sumarið. Verið er að setja upp eldhús og bæta aðstöðuna í móttökusal, ef einhverjir eiga borð og stóla, leirtau og annan eldhúsbúnað er það vel þegið. Kaffibollar og diskar þurfa ekki að vera samstæðir því ætlunin er að hafa þetta svona sitt úr hverir áttinni. Á boðstólum verða vöfflur og kökur með kaffinu, skrímslasúpa og svo verður hægt að fá sér öl líka. Unnið hefur verið að endurbótum á sýningunni , texti á ensku er kominn á viðtöl og sögur þannig að erlendir gestir okkar geta fengið innsýn í Skrímslaheiminn okkar.

Ása Dóra er 37 ára og á ættir að rekja til Arnarfjarðar, nánar tiltekið úr Hvestu. Hún er nú að ljúka námi í umhverfisskipulagi við Landbúnaðarháskóla Íslands og útskrifast þaðan í vor og flytur þá til Bíldudals. Bjóðum við hana velkomna til starfa og vonandi ílengist hún hér því við trúum því að gott sé að búa á Bíldudal.