ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Veitingastaðurinn Vegamót sem nýr

 

Nú eru verklok framundan á endurnýjun Veitingastaðarins Vegamóta á Bíldudal. Það má með sanni segja að um nýjan stað sé að ræða. Nýtt anddyri með salernisaðstöðu, nýtt eldhús með nýjum tækjum, ný gólfefni og lýsing, borðsalurinn rýmri og svo sér borðsalur á efri hæðinni. Já það verður gaman að fá sér að borða á staðnum eftir þessa breytingar, allt nýmálað og fínt. Búist er við að opnun verði á föstudaginn næsta, leggja iðnaðarmenn nú síðustu hönd á tengingar, ísetningar á gluggum og gleri. Nú er bara að bíða eftir matseðlinum og kitla bragðlaukanna um helgina og í sumar, en von er á fjölda ferðamanna vestur í sumar.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir