ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september


Tónlist hefur verið ríkur þáttur í menningarlífi Bílddælinga. Kannski verður ekki hægt að fjalla um alla tónlistarmenn frá Bíldudal og nærsveitum, en við skulum reyna okkar besta.

 

Kvartett Camerate var stofnaður í Bolungarvík á vordögum 2001 og hefur komið fram bæði innanlands og urtan síaðn þá. Kvartettinn skipa Elzbiete Kowalzyk, Mariola Kowalczyk en þær systur kenna nú við Tónlistaskóla Vesturbyggðar, Magnús Ólafur Hannson búsettur á Patreksfirði og Steingrímur Þorgeirsson frá Ísafirði.

Kvartettinn hefur nú gefið út hljómdisk með lögum frá 15. 16. og 17. öld, kirkjutónlist og gömul þjóðlög frá ýmsum löndum. Óhætt er að segja að tónlistin á disknum sé afar notaleg og vel flutt. Útgáfutónleikar voru haldnir í sjóræningjasafninu á Patreksfirði nú á dögunum og ráðgert er að halda tónleika á Ísafirði og Reykjavík á næstunni. Ljóst er að við hér á sunnanverðum fjörðunum höfum eignast frábærat tónlistafólk sem kemur í hóp margra annarra frábærra musikkannta. Hér má hlusta á þrjú lög af diskinum, gjörið svo vel:

Steal Away to Jesus. Negrasálmur:  Track04.cda 

Erla. Sigvaldi S. Kaldalóns, texti; Stefán frá Hvítadal  Track10.cda 

Kvöldljóð. Þjóðlag frá Rússlandi, texti; Valgarður Kristjánsson Track12.cda

Bílddælskir tónlistarmenn.

Græni bíllin hans Garðars er hljómsveit sem starfaði á Bíldudal á árunum 1987 til 1993 og spilaði á dansleikjum víða á Vestfjörðum. Þeir félagar gáfu út diskinn ENDALAUST árið 2003. Á diskinum er að finna sex lög en fimm þeirra má finna á forsíðu bildudalur.is og er hægt að spila lögin þar.

Lögin eru:

1.wma Bíldudalur bærinn minn, lag og texti: Þórarinn Hannesson.

2.wma Hana dreymir, lag og texti: Þórarinn Hannesson.

3.wma Svo lengi, lag: Viðar Örn Ástvaldsson, texti: Viðar Örn Ástvaldsson og Hafliði Magnússon.

4.wma Senjorinn, lag: Jörundur Garðarsson, texti: Hafliði Magnússon.

5.wma Inn í Otradal, lag: Ottó Valdimarsson, texti: ýmsir.

Liðsmenn hljómsveitarinnar er diskurinn var gefinn út voru; Bjarni Þór Sigurðsson--gítar og raddir, G. Hjalti Jónsson--trommur og annar ásláttur, Mattías Ágústsson--bassi og raddir, Viðar Ástvaldsson--söngur, hljómborð, gítar, trambúrína og raddir, Þórarinn Hannesson--söngur, kassagítar og raddir.


Þórarinn Hannesson er fæddur og upp alinn Bílddælingur. Þórarinn hefur verið mjög virkur tónlistarmaður og gefið út tvo hljómdiska. Diskinn Stolnar Stundir gaf Þórarinn út 2005 og er hægt að spila sex þeirra laga hér á forsíðu bildudalur.is.

Lögin eru:

4_T.wma Ég er ég, lag og texti: Þórarinn Hannesson. Lagið samdi Þórarinn í janúar 2004 eftir að hann hafði hlustað á viðtal við Þráinn Bertelsson í sjónvarpinu þar sem hann fjallaði um bók sína Einhvers konar ég.

6_T.wma Þú segir allt, lag og texti: Þórarinn Hannesson. Lagið er samið í janúar 2003 og er spunnið upp úr hugleiðingum um fólk sem sker sig úr fjöldanum, kryddar mannlífið með tilveru sinni.

7_T.wma Eitt andartak, lag og texti: Þórarinn Hannesson. Er Þórarinn var að undirbúa útgáfu hljómdisk sins Má ég kítla þig árið 2000 varð þetta lag til. Má segja að það hafi losað fimm ára stíflu í laga og textasmíðum hans. Textinn er saminn eftir eitt af hörmulegum slysum sem orðið hafa á Reykjanesbrautinni og fjallar um hverfulleika lífsins.

8_T.wma Nótt, bjarta nótt, lag og texti: Þórarinn Hannesson. Það var nótt í júní 2003 er þetta lag varð til eftir að höfundur hafði hlustað á viðtal Jóns Ólafssonar við tónlistarmanninn KK í sjónvarpinu. Er sólin kom upp um morguninn og flæddi inn um gluggann og útidyrnar, klukkan á vegnum sló taktinn þá kom textinn og allt small saman.

9_T.wma Eins og hún er, lag og texti: Þórarinn Hannesson. Já næturnar eru kjörnar til að semja, janúar 2002, allir sofnaðir og betra að hafa hljótt. Restin af textanum kom svo er höfundur lagðist til hvílu við hlið konu sinnar. Það er gott að vera til.

11_T.wma Veröldin okkar, lag og texti: Þórarinn Hannesson. Í september 2003 leitaði hugurinn til æskustöðvanna vestur á Bíldudal, æskuárin voru jú áhyggjulaus og björt, umhverfið fallegt og gott.

Hljómdiskinn Má ég kítla þig? gaf Þórarinn út 2001. Á diskinum eru 12 lög en eitt þeirra má finna á forsíðu bildudalur.is

Lagið er:

11_TH.wma Vísnakvöld fyrir vestan, lag og texti: Þórarinn Hannesson. Vísnakvöld er árviss atburður á milli jóla og nýárs sem haldinn er í Baldurshaga Bíldudal. Þar stíga listamenn á stokk og flytja frábæra dagskrá heilt kvöld.

Hljómdiska Þórarins er hægt að panta hjá höfundi hafnargata22@simnet.is og svo eru þeir til sölu á Vegamótum Bíldudal. Hljómdiskinn ENDALAUST er einnig hægt að kaupa á Vegamótum.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir