ENGLISH
mánudagurinn 6. september

  Sólarkaffi Bílddælinga.

Sólarkaffi Kvenfélagsins Framsóknar var haldið í Baldurshaga sunnudaginn 18. febrúar. Sólarkaffi er haldið til að fagna þess að annan febrúar sjá Bílddælingar sólina í fyrsta skipti á nýju ári, það er ef veður leyfir. Sólin sást í ár þann fjórða febrúar og er því gerð skyl hér á síðunni. Sólarkaffið í ár var að vanda glæsilegt og meðlæti með kaffinu ákaflega gómsætt. Það færist dálítið í vöxt að nágrannar okkar frá Tálknafirði og Patreksfirði komi í sólarkaffið til okkar á Bíldudal. Leikskólabörnin sungu að vanda fyrir kaffigesti og er ávalt gaman að sjá þau á sviði þar sem þau stíga sín fyrstu skref við að koma fram opinberlega. Þegar gestir höfðu fengið sér kaffisopann var spilað Bingó þar sem vinningar voru veglegir og fengu margir vinning.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir